Ingibjörg Pálsdóttir Eggerz fæddist í Búðardal 18. júlí 1916. Foreldrar hennar voru Páll Ólafur Ólafsson frá Hjarðarholti í Dölum og Hildur Stefánsdóttir frá Auðkúlu í Austur-Húnavatnssýslu. Þau eignuðust fimm börn, Stefán tannlækni, Ingibjörgu listmálara, Þorbjörgu Guðrúnu listakonu, Ólöfu myndhöggvara og Jens Ólaf Pál, mannfræðing og prófessor, sem öll ólust upp í Reykjavík. Faðir hennar var umsvifamikill útgerðarmaður, sem unni tónlist, samdi lög og orti ljóð. Hildur var listelsk og listfeng. Bæði komu þau frá landskunnum prestssetrum, Hjarðarholti og Auðkúlu. Heimilið í Reykjavík var fyrst á Hólavöllum og síðar í nýbyggingu á Sólvallagötu 4. Páll Ólafsson, faðir Ingibjargar, var einn þeirra atorkumanna sem kreppan á fjórða áratugnum lék illa og lítt gátu sætt sig við þann hag, sem þeim var búinn hér á landi á þeim tíma. Árið 1936 seldi hann hús sitt og fluttist með fjölskyldu sína til Danmerkur og síðar Færeyja. Þar gerðist hann atkvæðamikill í útgerð og kaupsýslu og var jafnframt fyrsti ræðismaður Íslands í Færeyjum.
Ingibjörg Pálsdóttir Eggerz
Páll og Hildur fluttust aftur til Danmerkur frá Færeyjum eftir stríð og bjuggu þar ínokkur ár. Ingibjörg var áfram í Reykjavík eftir að foreldrar hennar og systkini fluttu til Danmerkur. Fáum árum síðar eða 17. febrúar 1940, gekk hún að eiga unnusta sinn, Pétur Eggerz, lögfræðing f. 30. maí 1913, d. 12. maí 1994, son Sigurðar Eggerz, alþingismanns og forsætisráðherra og Sólveigar Kristjánsdóttur Eggerz. Var orð á því haft hve glæsileg hin ungu hjón væru. Þau Ingibjörg og Pétur bjuggu í Reykjavík til 1945, þar sem Pétur gegndi störfum ríkisstjóra- og forsetaritara. Eftir að stríðinu lauk voru Pétur og Ingibjörg með þeim fyrstu diplómötum sem nýja lýðveldið Ísland sendi til útlanda og dvöldu þau langdvölum erlendis á vegum utanríkisþjónustu Íslands - fyrst í London, svo Washington DC og síðast í Bonn. Íslendingar voru fáir á þessum slóðum, en héldu dyggilega hópinn. Pétur og Ingibjörg gerðu sér far um að halda saman þeim Íslendingum sem búsettir voru erlendis. Gamlar ljósmyndir bera vitni um að þá var oft glatt á hjalla. Tvær íslenskar konur í Washington tóku á þessum árum að leggja fyrir sig málaralist. Önnur var Ingibjörg, hin var Ragnheiður Jónsdóttir Ream. Vinum þeirra varð fljótlega ljóst, að um annað og meira var að ræða en tómstundagaman. Báðar stunduðu þær nám af mikilli alvöru og hlutu áður en langt um leið viðurkenningu fyrir árangur sinn. Þau Ingibjörg og Pétur héldu frá Washington til Bonn um haustið 1956. Eftir að hún fluttist til Þýskalands hélt Ingibjörg áfram námi hjá þekktum þýskum málurum, sýndi verk sín og vann til verðlauna. Pétur var kallaður heim til Íslands 1968 eftir að hjónin höfðu verið sleitulaust í útlöndum í 23 ár á vegum utanríkisþjónustu Íslands. Síðastu sýningu hélt Ingibjörg í Reykjavík 1986. Hún andaðist í Reykjavík 2. febrúar 1999. Þau Ingibjörg og Pétur eignuðust tvö börn: Sólveigu og Pál Ólaf sem eiga samtals 7 börn og 7 barnabörn. Dr. Páll Ólafur Eggerz
Leave a comment
Make sure you enter all the required information, indicated by an asterisk (*). HTML code is not allowed.